Umwelttechnik BW - nútímalegt fjölsíðukerfi

Atvinnugrein
Opinber stofnun
Lausn
Fjölsíðukerfi, Hýsingarlausn
Tækni
Drupal, Elasticsearch, Design system, React

ÁSKORUNIN

Stafrænt umhverfi UTBW var flókið, notast var við nokkur vefumsjónarkerfi og sérstakar vefsíður, þar sem hvert kerfi var með sérstakar hönnunar-, leitar- og viðhaldsþarfir. Þar sem engin gagnaskipti áttu sér stað milli kerfa, kom upp óhagkvæmni í öryggi, viðhaldi og notkun. Áskorunin var að sameina þessi kerfi í eitt öruggt, skalanlegt og aðgengilegt kerfi sem samræmdi kröfur um regluverk, afköst og þarfir notenda.

LAUSNIN

1xINTERNET starfaði með UTBW að því að sameina stafræna ferla með nútímalegu Drupal fjölsíðukerfi. Lausnin sameinaði efni og smærri vefi, innleiddi öflug leitar- og síukerfi og tryggði notendavænan aðgang að upplýsingum. Efni sem áður var til og virkni var fært yfir í nýju lausnina, sem skapaði skalanlegt og eininga bundið vefumsjónarkerfi sem þjónar sem burðarás í stafrænni vinnu UTBW um allt fylkið.

ÚTKOMAN

Nýtt vefkerfi UTBW miðlar umhverfis- og tæknilegri þekkingu með Elasticsearch fyrir hraðar niðurstöður, yfir 99,5% uppi tíma, WCAG 2.1 AA aðgengi og mjög hratt load á efni. Kerfið tryggir stöðuga og góða upplifun fyrir notendur sem eykur þátttöku og langtíma árangur. Árið 2024 var kerfið enn frekar nútímavætt með útgáfu Kongress BW, sem jók þátttöku með fullri samþættingu við viðburða gagnagrunn UTBW.

VIÐSKIPTAVINURINN

Umwelttechnik BW GmbH

UTBW hefur verið starfrækt síðan árið 2011 en hlutverk stofnunarinnar er halda utan um viðeigandi upplýsingar, t.d. um ýmsa starfsemi og aðila á sviði umhverfistækni og auðlindanýtingar. Þessar upplýsingar eiga að vera aðgengilegar á einum stað. Um 40 manns starfa hjá UTBW við það að leiða saman leiðtoga í viðskiptum, vísindum og stjórnmálum með það að markmiði að styðja við þróun stefnumótandi verkefna og veita fyrirtækjum stuðning og ráðgjöf.

Umwelttechnik BW GmbH leggur sérstaka áherslu á að aðstoða lítil og meðalstór fyrirtæki á svæðinu. Stofnunin stendur fyrir viðburðum tengdum ákveðnum starfsgreinum, notar innlenda og alþjóðlega markaðssetningu og setur saman sérstaka samstarfshópa. Fyrirtækin fá þannig aðstoð við að taka skref í átt að umhverfisvænni framtíð.

Rúmgott vöruhús með gulum öryggisgirðingum
VERKEFNIÐ

Fjölsíðulausn sem tengir saman fyrirtæki, vísindarannsóknir og stefnumótun

Umwelttechnik BW (UTBW) hafði það að markmiði að skapa miðlægan stafrænan vettvang til að sameina þekkingu, þjónustu og hagsmunaaðila, stuðla að sjálfbærri nýsköpun og flýta fyrir stefnumarkandi verkefnum. Í samstarfi við 1xINTERNET leysti UTBW af hólmi sundurlaust stafrænt landslag vefumsjónarkerfa og stakra vefsíðna með öflugri Drupal fjölsíðulaun. Áður hafði hver vefur sitt eigið útlit, leitarkerfi og engin gagna samskipti, sem gerði ómögulegt að nýta tengingar á milli þeirra.

Nýtt fjölsíðu kerfi gerir notendum nú kleift að uppgötva efni í mörgum kerfum, býður upp á samræmt útlit, örugga hýsingu og samþætt viðhald sem tryggir skalanleika og langtíma sjálfbærni. Háþróuð leit með Elasticsearch, gerir notendum kleift að finna fyrirtæki, styrktar prógrömm, verkefni, fréttir, viðburði og fleira, með skýrum þematengdum síðum sem leiða þau í gegnum fjölbreytta þjónustu UTBW.

Skjáskot af vefsíðu UTBW sem sýnir gagnvirkt kort

 

Skjáskot af vefsíðu UTBW sem sýnir leitarvirkni

 

Sameinuð gagnagrind

Nýja fjölsíðulausnin er með sameiginlegan kóða grunn fyrir alla vefi. Með því að sameina gögn frá sex mismunandi vefsíðum í einn arkitekúr er hægt að deila efni milli síðna á sama tíma og sérstaða hverrar vefsíðu er varðveitt.

Leitar- og síukerfi

Afmarkað leitar- og síukerfi, með Elasticsearch og React, samþætt í Drupal, gerir notendum kleift að nálgast allt efni stofnunarinnar, frá fyrirtækjum og styrktar prógrömmum til verkefna, verðlauna og frétta, í gegnum einn sameiginlegan leitarreit.

Samræmi vörumerkis

Samræmdar uppfærslur á notendaviðmóti (UI) og notendaupplifun (UX), í samræmi við vörumerkja leiðbeiningar UTBW, tryggja heildstæð sjónræn auðkenni í öllum kerfum. Hönnunin, sem byggir á aðgengi í farsímum (mobile-first), styrkir vörumerkjavitund, eykur áreiðanleika kerfisins og byggir upp traust notenda.

Fyrirtækjaprófílar

Skjámynd af heimasíðu UTBW

Umwelttechnik BW

Umwelttechnik BW er aðal vefkerfi ríkisstofnunar Baden-Württemberg fyrir umhverfistækni, auðlindanýtingu og iðnaðar loftslagsvernd. Kerfið þjónar sem miðlægur hub, sem aðstoðar fyrirtæki við að ráða fram úr alþjóðlegum umhverfismálum í gegnum tengslanet, ráðgjöf og fjármögnunar tækifæri. Kerfið tengir saman úrræði á nokkrum vefsíðum og býður upp á öfluga leit sem leiðbeinir notendum að upplýsingum, viðburðum, þjónustu og fleiru.

Meira um Umwelttechnik BW

Skjámynd af heimasíðu GreenTech BW

GreenTech BW

GreenTech BW sameinar fyrirtæki, sprotafyrirtæki, rannsóknarstofnanir og ráðuneyti til að flýta fyrir innleiðingu grænnar tækni í Baden-Württemberg. Fyrirtæki geta sýnt fram á sérfræðiþekkingu með ítarlegum prófílum og gagnvirku korti, á meðan þýðingartól gerir efni aðgengilegt á fimm tungumálum. Þættir eins og GreenTech BW Atlas, tengslaneta viðburðir og þekkingar úrræði stuðla að nýsköpun og styrkja svæðið sem leiðandi GreenTech miðstöð.

Meira um GreenTech BW

Skjámynd af heimasíðu Events UTBW

Events Umwelttechnik BW

Events platform tekur saman komandi ráðstefnur, vinnustofur og fundi í Baden-Württemberg. Kerfið getur kynnt allar tegundir viðburða, allt frá einföldum kynningarfundum til margra daga ráðstefna, og býður upp á samþætt bókunar- og skráningarkerfi sem tryggir auðveldan skráninar feril fyrir bæði skipuleggjendur og þátttakendur.

Meira um Events platform

Skjámynd af heimasíðu Kongress BW

Kongress BW

Kongress BW þjónar ársfundi tveggja daga, sem sameinar leiðtoga úr atvinnulífi, vísindum og stjórnmálum til að efla iðnaðarlega loftslagsvernd, auðlindanýtingu og hringrásarhagkerfi, stuðla að útbreiðslu þekkingar og styrkja hlutverk Baden-Württemberg í sjálfbærum iðnaði.

Meira um Kongress BW

Frammistaða í tölum

Breytingin á kerfinu árið 2024 gerbreytti tilkomu nýrra notenda, þátttöku og tæknilegrar frammistöðu. Umferð jókst á öllum rásum: bein umferð +186%, lífræn (e.organic) umferð +222% og herferðir +2.064%, á sama tíma notenda virkni jókst.

Gestir sem komu aftur dvöldu 26% lengur á síðunni, sem sýnir að umbætur á kerfinu skapa verðmæti fyrir notendur sem snúa aftur. Mikilvægast er að þátttaka nýrra notenda hélt áfram að vera sterk þrátt fyrir gríðarlega aukningu í umferð, sem bendir til að gæði nýrra notenda hafi haldist há.

Tæki sem notuð voru til að skoa síðuna hefur líka þróast, áður var skjáborð ráðandi (>90%), en farsímar eru nú notaðir í 18,2% heimsókna og skilar betri frammistöðu í Core Web Vitals. Farsímanotendur njóta hraðari hleðslutíma (82,5% góð LCP). Næstum fullkomnum viðbragðstíma var náð með 98,4% INP (Interaction to Next Paint).

Niðurstöðurnar sýna því að tæknileg nútímavæðing skilaði viðskiptalegum ávinningi í með framúrskarandi frammistöðu, á sama tíma og hún þjónar vaxandi notendahópi.

FRÁ KÚNNANUM

"Verkefnið hefur gengið mjög vel hingað til..."

Mynd af Katja Berg

“Nýja vefsíðan er stórt skref í því ferli að gera þá þjónustu sem ríkisstofnunin býður upp á aðgengilega stafrænt. Búið er að safna saman öllu nauðsynlegu efni og hanna framúrskarandi leit sem kemur með tillögur að hugsanlegum leitarorðum. Nú geta notendur ekki aðeins fundið það efni sem leitað er að, heldur skilar leitin viðbótarniðurstöðum um frekara efni tengt leitarefninu. Verkefnið hefur gengið mjög vel hingað til og við hlökkum til frekara samstarfs!”

Katja Berg, Verkefnastjóri yfir Digital media UTBW

HÁPUNKTAR

Samþætt öryggi, viðhald og notendaþjónusta

Sameinaður kóðagrunnur samræmir öryggi, viðhald og tæknilegan stuðning yfir öll vefkerfi, sem minnkar flækjustig og kostnað. Fjölsíðulausnin uppfyllir strangar öryggis- og reglugerðarkröfur hins opinbera á sama tíma og hún gerir  nýjungar mögulegar án þess að skerða stöðugleika. UTBW hefur náð að byggja upp sveigjanlegt og traust kerfi sem heldur áfram að vaxa í takt við markmið sitt um að efla umhverfislega nýsköpun.

Opinn hugbúnaður sem þjónar almannahag á stórum skala

Drupal kerfi UTBW sameinar hagsmunaaðila úr viðskiptum, vísindum og stjórnmálum í öruggu, hagkvæmu og sveigjanlegu stafrænu vistkerfi sem uppfyllir ströng skilyrði opinbera geirans. Hann eflir umhverfislega nýsköpun, gerir samstarf milli geira mögulegt og skilar varanlegu virði til þúsunda hagsmunaaðila í Baden-Württemberg.

Skjáskot af vefsíðu UTBW sem sýnir efni tengt sjálfbærni fyrir fyrirtæki

 

Drupal hýsing hjá 1xINTERNET

Vefkerfi UTBW er hýst hjá 1xINTERNET. Hýsingarlausnin okkar býður upp á nútímalegt innviði, sjálfvirka þróunarferla, áreiðanlega virkni og öryggi með stuðningi frá sérhæfðu DevOps-teymi. Sem stofnun hins opinbera þurfti UTBW á traustri og öruggri hýsingarlausn að halda fyrir alla stafræna innviði sína.

AF HVERJU DRUPAL?

Sameinuð kerfi með Drupal

Stofnunin hafði áður rekið vefsíður í Drupal 7 og 8 og var ánægð með hugbúnaðinn. Uppfærsla í sameinaðan Drupal 9 kóðagrunn gerði samstarf milli allra síðna mögulegt, á sama tíma og einstakleiki og sérsniðið innihald hvers vefsvæðis var varðveitt. Fjölsíðu arkitektúrinn einfaldar viðhald, minnkar endurtekinn kostnað vegna viðhalds og uppfærslna og tryggir samræmda virkni, öryggi og notendaupplifun yfir allt netið.

Önnur verkefni

Vefverslanir
Tákn hjónabands

VfSt - fínstillt e-commerce lausn

Flutningur á kerfi yfir í opinn hugbúnað samþætt við Drupal commerce til að tryggja hnökralaust kaupferli.

Vefverslanir
Skip á siglingu um Bodenvatn

BSB - headless e-commerce

Sérstilling og hámarksafköst með Drupal: notendamiðuð vefsíða með samþættu headless e-commerce kerfi til að auka sölu á netinu.