AI fyrir Drupal vefsíður - tilbúið til notkunar
Byggt fyrir þitt vinnuflæði
AI grunnpakki
AI grunnpakki okkar bætir snjallri, tilbúinni virkni við Drupal-vefsíðuna þína. Hann veitir teyminu þínu öflug verkfæri sem eru hönnuð til að draga úr handavinnu, spara tíma og skila árangri hraðar en nokkru sinni fyrr. Tilvalið fyrir stofnanir sem eru að hefja sína vegferð með gervigreind.

Auðvelt að byrja. Öflugt frá fyrsta degi
Að innleiða gervigreind þarf ekki að vera flókið. AI grunnpakki okkar fjarlægir algengar hindranir, en engin þörf er á að taka upp nýjar kerfislausnir, auka kostnað eða raska vinnuflæði teymisins. Allt er samþætt inn í þína Drupal vefsíðu, þannig að þú getur byrjað að nýta valda AI virkni frá fyrsta degi.
Minna flækjustig
Hagkvæmni í kostnaði
Auðvelt í notkun
Strax aukið virði
Samþætt gervigreindar virkni og sérfræðiaðstoð
Uppsetning á grunnvirkni gervigreindar
AI grunnpakki okkar inniheldur vinsælustu AI módúlana fyrir ritstjóra, markaðsfólk og vefstjóra, sem hjálpa þínum teymum að ná meiri árangri með minni fyrirhöfn.

AI textagerð
Fáðu tillögur að hágæða efni beint inní þitt Drupal vefumsjónarkerfi. Aðlagaðu tón, þýddu efni og dragðu saman langa texta til að höfða til þinna notenda á hvaða sniði sem er.
AI mynd lýsingar
Búðu til nákvæmar og merkingarbærar lýsingar fyrir myndir með hjálp gervigreindar. Bættu aðgengi fyrir alla notendur, uppfylltu WCAG-staðla og auktu SEO frammistöðu vefsíðunnar.
Sjálfvirk útfylling reita með gervigreind
Notaðu gervigreind til að búa sjálfkrafa til og fylla út reiti eins og titla á síður, samantektar texta, OpenGraph tögg og önnur skipulögð gögn (t.d. JSON-LD), allt byggt á efni síðunnar.
SEO vinna með gervigreind
Bættu leitarvéla niðurstöður með snjöllum tillögum að leitarorðum, sjálfvirkri gerð metatitla og lýsinga, og ítarlegri SEO greiningu gerða með gervigreind.
Samþætting við gervigreindarlíkön
Hægt er að tengjast við fjölbreytt úrval gervigreindar fyrirtækja, þar á meðal OpenAI, Google, Anthropic, Mistral og fleiri. Þú getur valið það API sem best uppfyllir kröfur þíns fyrirtækis, öryggisstefnu og samræmist þínum reglum.

Prófanir, innleiðing og þjálfun
Við förum með þér hvert skref í samþættingarferlinu við innleiðingu gervigreindar og sjáum um stillingar og prófanir. Eftir að samþætting er lokið, bjóðum við uppá þjálfun svo teymið þitt geti notað gervigreind í daglegu starfi.

Knúið áfram af Drupal
Drupal er opinn gervigreindar hugbúnaður sem býður upp á fyrsta flokks stafræna upplifun. Í gegnum Drupal AI Initiative eru nokkur leiðandi fyrirtæki (þar á meðal 1xINTERNET) að þróa lausn fyrir fyrirtæki, eininga bundna gervigreindar virkni sem er samþætt beint inn í Drupal. Drupal AI undirbýr þig fyrir framtíðina í gervigreind.

Önnur þjónusta
Gervigreindar aðstoðarmenn
Gervigreindar aðstoðarmenn sem gera gögnin þín aðgengileg og auðskilin.
AI vinnustofur
Vinnustofur til finna út hvaða leið er best fyrir þitt fyrirtæki og gervigreind.