Gló - vefkerfi fyrir samskipti og fjáröflun
ÁSKORUNIN
Þegar Gló undirbjó að taka upp nýtt nafn og ásýnd þurfti félagið nýja vefsíðu sem endurspeglaði betur hlutverk þess og starfsemi. Mikilvægt var að nýr vefur væri aðgengilegur og skýr, unnin eftir samhæfðu útliti og myndi uppfylla almenna aðgengistaðla til að mæta fjölbreytum hópi notenda. Gamli vefurinn hafði takmarkað ritstjórnarvald sem krafðist aðstoðar forritara og skorti virkni til að stýra tímaháðum fjáröflunarherferðum, viðburðum og vörusölu á skilvirkan hátt.
LAUSNIN
Vefverslun styður greiðslur í gegnum Teya og heldur utan um sendingar með Póstinum. Kerfið heldur einnig utan um tímabundin fjáröflunarátök og sjálfvirkar þýðingar, sem gerir teymi Gló kleift að stýra vefsíðunni sjálfstætt og tryggja aðgengi fyrir alla notendur.
ÚTKOMAN
Gló
Gló er almannaheillafélag sem er ekki rekið í hagnaðarskyni og hefur að markmiði að auka þátttöku barna og ungmenna með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir. Gló hefur verið frumkvöðull í þjónustu við fötluð börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra frá upphafi en félagið var stofnað árið 1952 að frumkvæði foreldra barna sem höfðu veikst í skæðum faraldri mænusóttar sem geisaði á Íslandi á þessum tíma.
Gló starfrækir Gló Æfingastöð þar sem veitt er snemmtæk íhlutun og fjölskyldumiðuð endurhæfingarþjónusta fyrir börn og ungmenni. Einnig býður Gló upp á sumarbúðir, helgardvalir og fjölbreytt tómstundatækifæri undir hatti Reykjadals. Gló skapar vettvang fyrir samstarf fjölskyldna, fræðimanna og fagfólks til að efla, skapa og miðla þekkingu og þjónustu sem styður við tækifæri fatlaðra barna og ungmenna til þátttöku og þroska.
Félagið breytti nýlega um nafn úr SLF (Styrktarfélag lamaðra og fatlaðra) í Gló í kjölfar endurmörkunar. Nýja nafnið og fersk ásýnd endurspeglar markmið félagsins um að skapa tækifæri og styðja við þátttöku barna og ungmenna í samfélaginu.
Víðtæk starfsemi Gló og fjölbreyttur notendahópur kallar á skýrleika, aðgengi og auðvelda notkun vefsins fyrir öll. Eins byggir Gló að miklu leyti á fjáröflun og sölu á vörum, sem í sumum tilvikum er árstíðabundin. Því er mikilvægt að það sé einfalt, aðgengilegt og þægilegt fyrir notendur að styðja félagið á netinu.
Vettvangur fyrir samskipti og fjáröflun
Verkefnið fólst í að þróa vefkerfi sem veitir skýra og heildstæða yfirsýn yfir þrjú meginsvið starfsemi Gló. Jafnframt styður kerfið við skilvirk samskipti við þjónustuþega og almenning, auk þess að efla fjáröflunarstarfsemi samtakanna.
Kerfið sameinar öflug kerfi fyrir ritstjóra, algilda hönnun og vefverslun fyrir vörur seldar í fjáröflunarskyni, með samþættingu við greiðslugáttir og sendingarlausnir. Þá leggur kerfið einnig áherslu á góða afkastagetu, leitarvélabestun (SEO) og sjálfvirkar þýðingar.
Kerfið styður einnig sértæk fjáröflunarátök með sérstökum sölureglum þar sem ákveðnar vörur eru aðeins fáanlegar á skilgreindum tímabilum.
Gló leitaði til 1xINTERNET á tímabili breytinga þegar félagið var að kynna nýja vörumerkjaímynd. Fyrri vefsíðan endurspeglaði ekki lengur starfsemi eða hlutverk félagsins. Hönnun og framsetning voru úrelt og gerðu það erfitt að miðla markmiðum og gildum Gló á skýran og aðlaðandi hátt.
Aðgengi er lykilatriði í starfi Gló, þar sem félagið styður börn og ungmenni með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir. Fyrri vefsíðan uppfyllti þó ekki þau aðgengisviðmið sem nauðsynleg eru til að þjóna öllum notendum, sérstaklega þeim sem nota hjálpartæki eins og skjálesara.
Á sama tíma var ritstjórnarkerfið takmarkað. Ritstjórar höfðu lítinn sveigjanleika og þurftu oft að leita til forritara til að framkvæma jafnvel litlar breytingar. Þetta hægði á uppfærslum og takmarkaði getu félagsins til að stjórna eigin stafrænu ásýnd.
Gló vildi einnig bæta virkni vefsíðunnar til að styðja betur við fjáröflun og vörusölu. Slík verkefni fela oft í sér sérstakar reglur, til dæmis vörur sem eru aðeins fáanlegar á ákveðnum tímabilum. Fyrri lausnin bauð ekki upp á nægjanlegan sveigjanleika til að stýra slíkri sölu.
Til að styðja við nýja vörumerkið og framtíðarþarfir þurfti Gló á nútímalegu, aðgengilegu og sveigjanlegu kerfi að halda sem gæfi teyminu meiri stjórn og gerði mögulegt að bæta við nýrri virkni eins og netverslun og herferðarstýrðri sölu.
Aðgengisstig
Vefsíðan nær nú fullkomnu Lighthouse aðgengisstigi, 100 bæði á tölvum og farsímum, sem tryggir að hún þjónar notendum með fjölbreyttar þarfir, þar á meðal þeim sem nota skjálesara.
Sveigjanleg efnisstjórnun
Ritstjórar hafa nú fulla stjórn á efni með svokölluðum paragraph-byggðum efnisblokkum. Þetta minnkar þörfina fyrir aðstoð forritara við uppfærslur og gerir efnisstjórnun hraðari og sveigjanlegri.
Samþætt netverslun og fjáröflunarherferðir
Drupal Commerce samþætting við Teya og Póstinn styður flóknar og tímabundnar fjáröflunarherferðir. Sjálfvirkar þýðingar auka einnig aðgengi að efninu á fleiri tungumálum.
"Fagleg og hjálpleg þjónusta hjá 1x..."
„Við fundum strax að við værum í góðum höndum í endurnýjun vefsíðunnar með 1xINTERNET. Reynsla þeirra af sambærilegum verkefnum var augljós, en á sama tíma tóku þau sér tíma til að skilja þarfir okkar og markmið svo vefsíðan myndi raunverulega uppfylla væntingar okkar. Þau lögðu einnig mikla áherslu á að við værum örugg og sjálfstæð í vinnu með vefsíðuna eftir að hún fór í loftið sem var sérstaklega mikilvægt fyrir þá sem vinna efni á síðunni okkar.“
Kristín Dagmar, Markaðs- og fjáröflunarstjóri hjá Gló
Tilbúin fyrir stafræna framtíð
Nýja vefkerfið veitir Gló sterkan stafrænan grunn sem styður bæði samskipti og fjáröflunarstarfsemi félagsins. Með því að sameina aðgengi, sveigjanlega efnisstjórnun og samþætta netverslun hefur félagið nú þau verkfæri sem þarf til að stýra sinni stafrænu ásýnd á sjálfstæðan og skilvirkan hátt.
Vefsíðan endurspeglar skýrt nýja ásýnd Gló og tryggir jafnframt að upplýsingar og þjónusta séu aðgengileg öllum notendum, þar á meðal þeim sem nota hjálpartæki.
Með sveigjanlegt Drupal kerfi er Gló vel í stakk búið til að þróa áfram stafræna þjónustu og fjáröflunarverkefni. Framtíðar samþættingar, við vörukerfi og styrktarkerfi, munu enn frekar einfalda rekstur og bæta upplifun bæði stuðningsaðila, notenda þjónustunnar og starfsfólks félagsins.
Þessar umbætur gera Gló því kleift að einbeita sér að því sem skiptir mestu máli: að skapa tækifæri fyrir öll börn og ungmenni með fjölbreyttar áskoranir og stuðningsþarfir til að tilheyra og taka þátt.
Að mæta tæknilegum og rekstrarlegum þörfum
Kerfið var byggt með Drupal ásamt CMS-lausn sem þróuð var af 1xINTERNET og veitir sveigjanlegan og skalanlegan grunn fyrir Gló stuðningsfélag. Kerfið hentar sérstaklega vel fyrir sérsniðnar netverslunarlausnir en jafnframt er auðvelt að búa til og viðhalda efni á síðunni.
Drupal uppfyllir einnig ströng aðgengisviðmið og býður upp á einfaldar samþættingar við ytri kerfi, svo sem greiðslugáttir og póstþjónustu. Þannig tryggir lausnin að vefsíðan uppfylli bæði tæknilegar og rekstrarlegar þarfir Gló. Notkun CMS-lausnar sem þróuð var af 1xINTERNET hraðaði enn frekar þróunarferlinu með því að bjóða upp á tilbúna virkni fyrir kerfið sem skilaði stöðugu, skilvirku kerfi tilbúnu til áframhaldandi vaxtar.
Önnur verkefni
Alþjóðadagur krabbameins - skalanlegt hýsingar platform