1xINTERNET nýr styrktaraðili íslenska landsliðsins í handbolta

2 min.
1xTeam with the icelandic national handball team

1xINTERNET hefur bæst í hóp bakhjarla Handknattleikssambands Íslands árið 2024. Frá og með EM í Þýskalandi mun 1xINTERNET hafa auglýsingu sína á treyjum karla og kvenna landsliða Íslands í handbolta.

1xINTERNET, sem sérhæfir sig í hugbúnaðarlausnum fyrir fyrirtæki, hefur sterka tengingu við bæði Ísland og Þýskaland en fyrirtækið er með skrifstofur í báðum löndum og vinnur jöfnum höndum fyrir íslenska og þýska viðskiptavini.

“Okkur fannst spennandi að taka þátt í að styðja við landsliðið á þennan hátt, við höfum ekki verið í mikilli markaðsvinnu á Íslandi þrátt fyrir að vinna fyrir mörg frábær íslensk fyrirtæki. 1xINTERNET er með skrifstofur á Íslandi, Þýskalandi og Spáni þar sem handbolti er fyrirferðamikil íþrótt, og svo spilar náttúrulega inní mikill áhugi á handbolta innan veggja 1xINTERNET. Ég var sjálf í handbolta á mínum yngri árum og ólst upp á handboltavellinum. Pabbi minn, Ólafur Jónsson, og bróðir, Jason Ólafsson, spiluðu báðir fyrir landslið Íslands í handbolta,” segir Baddý Sonja Ólafsdóttir, framkvæmdastjóri og eigandi 1xINTERNET.

Vefsíða tileinkuð landsliðinu

Í tilefni af EM setti 1xINTERNET upp einfalda vefsíðu https://www.hsi.1xinternet.is/ tileinkaða landsliðinu. Þar má finna létt viðtöl við leikmenn liðsins, ásamt svæði þar sem hægt er að senda strákunum baráttukveðjur og sjá yfirlit yfir umfjöllun frá samfélagsmiðlum á https://www.hsi.1xinternet.is/fanzone með myllumerkinu #strakarnirokkar 

Kjartan Vídó, markaðsstjóri HSÍ, segist ánægður með að fá 1xINTERNET í hóp bakhjarla HSÍ: “Það er alltaf gaman að fá inn nýja samstarfsaðila, við hlökkum til samstarfsins með 1xINTERNET sem fer vel af stað með nýja vefsvæðinu sem sýnir leikmenn liðsins kannski í öðru ljósi en vanalega er gert.”

Fleiri greinar

News

We are a proud sponsor of Makkabi Frankfurt

Sommerfest Makkabi Frankfurt

At 1xINTERNET we learned that the sports club Makkabi Frankfurt shares and lives by the same...

3 min.
Viðburðir

Hápunktar frá Nordic Women in Tech Awards 2023

1xINTERNET at NWITA

Norrænu tækniverðlaunin, Nordic Women in Tech fóru fram í Hörpu í nóvember.

3 min.