   Brauðmolar1. [Heim](/is) /
2. Aðgengisyfirlýsing
 # Aðgengisyfirlýsing
 **Síðast uppfærð 29. júlí 2025**
Þessi aðgengisyfirlýsing á við vefsvæði 1xINTERNET: [www.1xinternet.com](/is "Leiðandi hugbúnaðarhús í Evrópu").
Þessi vefsíða er rekin af 1xINTERNET. Við erum skuldbundin til að tryggja stafrænt aðgengi fyrir alla notendur, þar á meðal þá sem eru með fötlun. Við leitumst við að bæta stöðugt notendaupplifun á vefsíðu okkar og fylgja viðurkenndum aðgengisstöðlum.
## Ráðstafanir til að tryggja aðgengi
**Við gerum eftirfarandi ráðstafanir til að tryggja aðgengi:**
- Látum aðgengi vera hluta af leiðarljósi og gildum fyrirtækisins.
- Fléttum aðgengisstaðla inn í hönnunar- og þróunarferla okkar.
- Þjálfum teymi okkar til að tryggja að meginreglum um þátttöku hönnun sé fylgt.
- Framkvæmum reglulegar úttektir og uppfærslur til að viðhalda því að farið sé að reglum er við kemur aðgengi.
## Hvernig þú ættir að geta notað þessa vefsíðu
Við viljum að eins margir og mögulegt er geti notað þessa vefsíðu. Til dæmis þýðir það að þú ættir að geta auðveldlega farið um, skilið og notað efni okkar:
- **Leiðsögn og samskipti:** Auðvelt er að fara um vefsíðuna með lyklaborði. Fókusvísar eru sýnilegir og fliparöðin fylgir rökréttu flæði. Gagnvirkir þættir virka rétt með lyklaborðs stýringu. Eyðublöð innihalda skýr merki, leiðbeiningar og aðgengileg villuskilaboð. "Hoppa í aðalefni" hlekkur er tiltækur og virkar.
- **Skjálesari og hjálpar tækni:** Efni er skipulagt fyrir skjálesara með réttum fyrirsögnum, ARIA merkjum og hlutverkum. Allir gagnvirkir þættir og breytilegt efni er kynnt rétt. Eyðublöð og villuskilaboð eru aðgengileg. Tungumála möguleikar eru rétt stilltir. Tengla- og alt-textar eru skýrir og lýsandi.
- **Sjónrænt og skipulags aðgengi:** Hægt er að breyta stærð texta eða þysja án þess að tapa efni eða virkni. Litaskipti uppfyllir WCAG 2.1 AA staðla fyrir betri læsileika. Myndir nota skýran og lýsandi alt-texta eða eru merktar sem skraut. Fyrirsagnir eru notaðar í réttri röð. Útlitið er sveigjanlegt og aðlagast vel á milli tækja.
## Ábendingar og tengiliðaupplýsingar
Ef þú finnur einhver vandamál sem ekki eru talin upp á þessari síðu eða telur að við uppfyllum ekki aðgengiskröfur, hafðu samband:
- **Sími:** +49 69 97 67 11 50
- **Tölvupóstur:** [office@1xinternet.com](office@1xinternet.com)
- **Heimilisfang:** Seelenberger Str. 2, 60489 Frankfurt, Þýskaland
Við munum skoða beiðni þína og svara þér innan 5 virkra daga.
## Tæknilegar upplýsingar um aðgengi þessarar vefsíðu
1xINTERNET skuldbindur sig til að gera vefsíðu sína aðgengilega, í samræmi við [Evrópsku aðgengislögin 2025](https://commission.europa.eu/strategy-and-policy/policies/justice-and-fundamental-rights/disability/union-equality-strategy-rights-persons-disabilities-2021-2030/european-accessibility-act_en), í samræmi við **Leiðbeiningar um aðgengi vefefnis (WCAG) 2.2 AA** staðla.
## Samræmis staða
Þessi vefsíða er **að hluta í samræmi** við [Leiðbeiningar um aðgengi vefefnis útgáfu 2.2](https://www.w3.org/TR/WCAG22/) AA staðal, vegna vansamræmis sem talið er upp hér að neðan.
## Efni sem er ekki aðgengilegt
Efnið sem talið er upp hér að neðan er ekki aðgengilegt af eftirfarandi ástæðum.
## Ekki í samræmi við agengisreglur
### Myndir og sjónrænt efni
1. SVG lógó viðskiptavina skortir aðgengileg heiti. Samstarfs fyrirtækjum er ekki miðlað til stoðtækni. Þetta brýtur í bága við WCAG 2.2 árangursviðmið 1.1.1 (Ekki texta innihald).
2. Hreyfimyndir skortir aðgengileg heiti. Skjálesarar geta ekki lýst hreyfimynduðu efni fyrir notendur. Þetta brýtur í bága við WCAG 2.2 árangursviðmið 1.1.1 (Ekki texta innihald).
### Lyklaborðs leiðsögn
3. Farsímavalmynd er ekki að fullu aðgengileg með lyklaborðsleiðsögn. Notendur sem treysta á lyklaborð geta ekki farið rétt um farsímavalmyndina. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.1.1 (Lyklaborð).
4. Síunarviðmót neyða lyklaborðsnotendur til að flippa í gegnum alla valkosti án þess að hafa hoppmöguleika, sem skapar óhagkvæma leiðsögn. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.1.1 (Lyklaborð) og 2.4.1 (Komast hjá blokkum).
### Fókusstjórnun og sjónvísar
5. Fókusvísar fyrir suma hnappa hafa ófullnægjandi birtuskil, sem gerir þá næstum ósýnilega. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 1.4.11 (Birtuskil þar sem er ekki texti).
6. Jaðrar leiðsöguhnappa skortir nægileg birtuskil við bakgrunn síðunnar, sem dregur úr sýnileika. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 1.4.11 (Birtuskil þar sem er ekki texti).
### Gagnvirkir þættir og stjórnun
7. Vídeóskiptihnappar nota óskýr merki og ná ekki að miðla núverandi stöðu sinni eða væntanlegri aðgerð. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 4.1.2 (Nafn, Hlutverk, Gildi).
8. Vídeó stjórnun helst í fliparöðinni jafnvel þegar vídeó eru óvirk, sem skapar óþarfa leiðsögnuskref. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.4.3 (Fókusröð) og 2.1.1 (Lyklaborð).
### Leitarvirkni
9. Virkjun leitar færir ekki sjálfkrafa fókus á inntaks reitinn, sem krefst handvirkrar leiðsagnar. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.4.3 (Fókusröð).
10. Leitarviðmót veita óþarfa ábendingar og skortir stöðuuppfærslur, sem gæti ruglað notendur. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 3.2.1 ( Er varðar fókus) og 4.1.3 (Stöðu skilaboð).
11. Engin fókusstjórnun á sér stað eftir að leit lýkur, sem skilur notendur eftir óvissa um staðsetningu niðurstöðu. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.4.3 (Fókusröð).
### Hreyfimyndir
12. Hreyfimyndir fara yfir fimm sekúndur án hlévals stjórnunar, sem getur valdið óþægindum fyrir notendur með jafnvægistruflanir. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.3.3 (Hreyfimynd úr samskiptum) og 2.2.2 (Hlé, Stopp, Fela).
### Form og inntaks aðstoð
13. Sérsniðin fellivalmynd er ekki aðgengileg með lyklaborði, sem hindrar samskipti/notkun við eyðublöð. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 2.1.1 (Lyklaborð).
### Síur og leiðsögu tilkynningar
14. Síunahópar tilkynna ekki opnaðar eða lokaðar stöður til hjálpartækni. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 4.1.2 (Nafn, Hlutverk, Gildi).
15. Síunarnotkun veitir engar forritunar tilkynningar um breytingar eða niðurstöður. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 4.1.3 (Stöðuskilaboð).
16. Síunahópar eru tilkynntir á almennan hátt án lýsandi samhengis flokka, sem gæti ruglað notendur. Þetta stenst ekki WCAG 2.2 árangursviðmið 1.3.1 (Upplýsingar og tengsl).
**Við stefnum að því að leysa sem flest af þessum málum fyrir október 2025 sem hluti af vinnu við að bæta aðgengismál vefsíðunnar.**
## Undirbúningur við þessa aðgengisyfirlýsingu
Þessi yfirlýsing var útbúin 25. júlí 2025. Hún var síðast yfirfarin 29. júlí 2025.
Vefsíðan var síðast prófuð 25. júlí 2025 gagnvart WCAG 2.2 AA staðlinum.
Skuldbinding okkar um aðgengi felur í sér reglubundið mat hjá sérfræðingum okkar í aðgengi með því að nota sjálfvirk verkfæri, yfirlýsta staðla og ítarlegar handvirkar prófanir.
**Original url:** https://www.1xinternet.com/is/adgengisyfirlysing